A1 Refereed original research article in a scientific journal
Nám í samfélagstannlækningum á Norðurlöndum (Dental Public Health education in the Nordic countries)
Authors: Virtanen Jorma, Salehi Maryam, Klock Kristin
Publisher: Tannlæknafélag Íslands
Publication year: 2021
Journal: Tannlæknablaðið (Icelandic dental journal)
Volume: 39
Issue: 1
First page : 76
Last page: 83
eISSN: 2298-9013
DOI: https://doi.org/10.33112/tann.39.1.8
Markmið: Að kanna kennslu og námsefni um lýðtannheilsu/samfélagstannlækningar í tannlæknaskólum á Norðurlöndunum og bera saman við stöðu þessara mála í öðrum Evrópulöndum.
Aðferðafræði: Vorið 2020 var framkvæmd þversniðskönnun í tannlæknaskólum á Norðurlöndum. Í þessari rannsókn var notast við EADPH-spurningalista fyrir sérstaka hópa (e. European Association for Dental Public Health Special Interest Group). Nafnlausir spurningalistar voru sendir rafrænt til deildarforseta tannlæknaskóla í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Áminningar voru sendar þeim sem ekki svöruðu. Niðurstöður voru bornar saman við samsvarandi niðurstöður úr rannsóknum í öðrum Evrópulöndum.
Niðurstöður: Alls bárust svör frá 86% tannlæknaskólanna (12/14). Í flestum tannlæknaskólum (9/12) var greint frá því að til staðar væri sérstök deild eða eining fyrir nám í samfélagstannlækningum. Nám í samfélagstannlækningum var á bilinu 3 til 25 ECTSeiningar (meðaltal: 10 einingar). Á Norðurlöndum var vel farið yfir viðfangsefnin „Jöfnuður í þjónustu“ (92% samanborið við 68%) og „Greiðslur og greiðslukerfi“ (92% samanborið við 62%) en marktækt minna yfir viðfangsefnið „Lýðheilsunálgun og -færni“ (58% samanborið við 89%) en raunin er annars staðar í Evrópu.
Ályktanir: Rannsóknin leiddi í ljós að á Norðurlöndum er nám í samfélagstannlækningum almennt séð sambærilegt eða betra en gengur og gerist annars staðar í Evrópu, en þó ekki á öllum sviðum. Mikill breytileiki er milli landa og skóla.